A landslið karla upp um 5 sæti á styrkleikalista FIFA
A landslið karla er í 35. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og hækkar stöðu sína um fimm sæti frá því listinn var síðast gefinn út. Belgía, sem var með íslenska liðinu í riðli í Þjóðadeildinni, heldur efsta sætinu og raunar er engin breyting á efstu fjórum sætunum. Nýkrýndir Þjóðadeildarmeistarar Portúgals hækka um tvö sæti og fara upp í það fimmta.
Heimsmeistarar Frakka eru í 2. sæti listans og staða annarra liða sem eru með Íslandi í riðli í undankeppni EM 2020 er þannig að Tyrkland er í 37. sæti, Albanía í 66. sæti, Andorra í 139. sæti og Moldóva í 170.
Smellið hér til að skoða listann í heild
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net