Miðasala á leikina við Albaníu og Tyrkland í fullum gangi
Miðasala á leiki A landsliðs karla við Albaníu og Tyrkland í undankeppni EM 2020 er nú í fullum gangi á Tix.is. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi leikjanna og þau áhrif sem öflugur stuðningur getur haft.
Þegar þetta er ritað eru um 2.100 miðar eftir á leikinn við Albaníu 8. júní og um 1.500 miðar eftir á leikinn við Tyrkland 11. júní.