A karla - Ísland mætir Andorra á föstudag
Myndir - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Andorra á föstudaginn í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2020. Leikurinn fer fram í Andorra og hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma.
Liðin hafa mæst fimm sinnum og hefur Ísland unnið alla leikina, skorað 14 mörk og ekki fengið á sig neitt.
Strákarnir mæta síðan Frökkum á mánudaginn, en sá leikur fer fram á Stade de France í París.