A karla - Hópurinn fyrir leikina gegn Andorra og Frakklandi
Erik Hamren, landsliðsþjálfari A karla, hefur valið hópinn sem tekur þátt í leikjunum gegn Andorra og Frakklandi. Þetta eru fyrstu tveir leikir liðsins í undankeppni EM 2020.
Báðir leikirnir fara fram ytra. Ísland mætir Andorra 22. mars og hefst leikurinn klukkan 19:45. Leikurinn gegn Frakklandi fer síðan fram 25. mars og hefst klukkan 19:45.
Ísland hefur mætt Andorra fimm sinnum og unnið alla leikina, með markatöluna 14-0. Síðast léku liðin 14. nóvember 2012 og endaði sá leikur með 2-0 sigri Íslands, en leikið var ytra. Sex leikmenn sem eru í hópnum í dag tóku þátt í þeim leik.
Ísland hefur mætt Frakklandi 13 sinnum. Fjórir leikir hafa endað með jafntefli og Frakkland hefur unnið 9. Liðin mættust síðast 11. október 2018 og endaði sá leikur með 2-2 jafntefli.
Hópurinn
Hannes Halldórsson | Qarabag
Rúnar Alex Rúnarsson | Dijon
Ögmundur Kristinsson | Larissa
Birkir Már Sævarsson | Valur
Hörður Björgvin Magnússon | CSKA Moscow
Ari Freyr Skúlason | Lokeren
Kári Árnason | Genclerbirligi
Ragnar Sigurðsson | Rostov
Sverrir Ingi Ingason | PAOK
Jón Guðni Fjóluson | Krasnodar
Hjörtur Hermannsson | Bröndby
Birkir Bjarnason | Aston Villa
Aron Einar Gunnarsson | Cardiff
Gylfi Sigurðsson | Everton
Rúnar Már Sigurjónsson | Grasshopper
Guðlaugur Victor Pálsson | Darmstadt
Albert Guðmundsson | AZ Alkmaar
Arnór Ingvi Traustason | Malmö
Arnór Sigurðsson | CSKA Moscow
Jóhann Berg Guðmundsson | Burnley
Rúrik Gíslason | Sandhausen
Alfreð Finnbogason | Augsburg
Björn Bergmann Sigurðarson | Rostov