Æfingabúðir í Katar
Karlalandsliðið er í Katar um þessar mundir við æfingar og mun leika vináttuleiki í Doha við Svíþjóð 11. janúar og Eistland 15. janúar. Leikmannahópurinn er að mestu skipaður leikmönnum sem eru á mála hjá félagsliðum á Norðurlöndunum og Íslandi. Sænska liðið lék gegn Finnlandi í vikunni og beið þar lægri hluti, 0-1.
Hægt er að fylgjast með fréttum af liðinu í gegnum samfélagsmiðla KSÍ.