A karla - Hópurinn fyrir leikina í Katar í janúar
Erik Hamren hefur tilkynnt hóp A landsliðs karla sem tekur þátt í janúarverkefni liðsins í Katar.
A landslið karla hefur síðustu árin leikið vináttuleiki í janúar. Þau verkefni eru utan alþjóðlegra leikdaga og eru leikmennirnir sem taka þátt fyrir Íslands hönd því flestir frá félagsliðum á Norðurlöndunum og Íslandi, en þó ekki allir.
Í þessum verkefnum gefst leikmönnum sem jafnan eru utan leikmannahópsins á alþjóðlegu leikdögunum, í mótsleikjum, því tækifæri til að sýna sig og sanna, enda fer leikdögum fyrir vináttulandsleiki fækkandi.
Síðustu ár hefur landsliðið leikið í Indónesíu, Kína, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Bandaríkjunum, þar sem fjölmargir leikmenn hafa fengið tækifæri og þannig öðlast dýrmæta reynslu.
Allir landsleikir (hlekkur)
Erik Hamrén:
,,Við erum spenntir fyrir því að spila gegn erfiðum og áhugaverðum andstæðingum sem spila mismunandi gerð af knattspyrnu. Hópurinn hjá okkur er blanda af leikmönnum sem hefur mikla reynslu hjá okkur ásamt þeim sem hafa lítið komið við sögu. Það verður því gott að æfa við frábærar aðstæður."
Hópurinn
Markmenn
Ingvar Jónsson
Frederik Schram
Anton Ari Einarsson
Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson
Kári Árnason
Hjörtur Hermannsson
Böðvar Böðvarsson
Adam Örn Arnarson
Eiður Aron Sigurbjörnsson
Davíð Kristján Ólafsson
Axel Óskar Andrésson
Miðjumenn
Arnór Smárason
Eggert Gunnþór Jónsson
Samúel Kári Friðjónsson
Guðmundur Þórarinsson
Aron Elís Þrándarson
Hilmar Árni Halldórsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Alex Þór Hauksson
Willum Þór Willumsson
Sóknarmenn
Óttar Magnús Karlsson
Kristján Flóki Finnbogason
Andri Rúnar Bjarnason