• mán. 20. apr. 2015
  • Dómaramál

Héraðsdómaranámskeið á Egilsstöðum sunnudaginn 26. apríl

football-referee-equipment

Héraðsdómaranámskeið verður haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Egilsstöðum sunnudaginn 26. apríl kl. 10:30.  Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.  Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis.

Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is