• mið. 11. mar. 2015
  • Dómaramál

Unglingadómaranámskeið í Víkinni 12. mars

Víkingur Reykjavík
viki-01

Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá Víkingi fimmtudaginn 12. mars kl. 18:00.  Námskeiðið fer fram í Víkinni og er haldið af KSÍ í samvinnu við Víking.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Aðgangur er ókeypis.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is