Unglingadómaranámskeið hjá ÍA 18. mars
Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá ÍA á Jaðarsbökkum miðvikudaginn 18. mars kl. 16:00. Námskeiðið, sem haldið er af KSÍ í samvinnu við ÍA, stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Aðgangur er ókeypis.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is