• fös. 19. apr. 2013
  • Landslið

Vináttulandsleikur gegn Færeyjum á Laugardalsvelli 14. ágúst

Island-Noregur-(3)
Island-Noregur-(3)

Knattspyrnusambönd Íslands og Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Laugardalsvelli 14. ágúst næstkomandi.  Þetta er í 25. skiptið sem þessar þjóðir mætast hjá A landsliði karla.

Íslendingar hafa haft betur 22 sinnum í viðureignum þessara þjóða, einu sinni hefur orðið jafntefli og Færeyingar hafa einu sinni haft betur.  Færeyingar leika í C riðli í undankeppni HM og er þar án stiga eftir fjóra leiki.  Ísland er í öðru sæti í sínum riðli, með jafnmörg stig og Albanía en tveimur stigum minna en topplið Sviss.

Næsta verkefni karlalandsliðsins er hinsvegar mikilvægur leikur gegn Slóveníu á Laugardalsvelli 7. júní og er miðasala á þann leik í fullum gangi.