Unglingadómaranámskeið hefst 4. maí
Unglingadómaranámskeið verður haldið í maí og er að mestu leyti um heimanám að ræða, þar sem þátttakendur sækja námsefnið á vef KSÍ, en námskeiðinu lýkur með prófi 25. og 26. maí.
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1991) og eldri. Konur eru sérstaklega hvattar til að taka þátt.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 3. maí.
Fyrirkomulag
Þátttakendur sækja námsefni á vef KSÍ. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi 25/5 og 26/5.
Próf
Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur fer próf fram í Reykjavík og víðar ef þörf krefur.
Þátttakendur
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 15 ára á almanaksárinu (fædd 1992) og eldri. Kvenfólk er sérstaklega hvatt til að taka þátt.
Skráning
Hægt er að skrá sig með tölvupósti, thorvaldur@ksi.is eða í síma 510-2900 í síðasta lagi 3. maí. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:
- Nafn
- Heimilisfang
- Kennitala
- Sími
- GSM
- Netfang
- Félag
Þátttökugjald
kr. 3.000
Greiðsla
Greiða skal námskeiðsgjaldið inn á reikning 0101-26-700400, fyrir 4. maí og senda staðfestingu til KSÍ (Kennitala KSÍ er 700169-3679).
Vinsamlegast athugið!
Félög eru vinsamlegast beðin um að vanda skráningar því mikið hefur verið um að á námskeiðin hafi verið skráðir nemendur sem ætla sér aldrei að ljúka námskeiðinu. Þetta hefur haft í för með sér mikla óþarfa vinnu fyrir skrifstofu KSÍ.