Leikið við England í Akraneshöllinni í dag kl. 18:00
Framundan eru tveir vináttulandsleikir hjá íslenska U19 landsliði kvenna við England. Fyrri leikurinn er leikinn í hinni nýju Akraneshöll, þriðjudaginn 21. nóvember kl. 18:00. Sá seinni er í Egilshöllinni, fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20:00.
Er þetta í fyrsta skipti sem að landsleikur fer fram í Akraneshöllinni en hún var vígð í síðasta mánuði.
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt hópinn er tekur þátt í þessum tveimur leikjum.
Þessir vináttulandsleikir eru góður undirbúningur fyrir íslenska liðið en liðið leikur í úrslitakeppni EM á heimavelli í júlí 2007.
Dómarar leiksins á Akranesi verða:
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Aðstoðardómari 1: Valgeir Valgeirsson
Aðstoðardómari 2: Guðmundur Valgeirsson
Fjórði dómari: Sævar Jónsson
Áhorfendur eru hvattir til þess að koma og hvetja stelpurnar gegn sterku ensku liði. Aðgangur á leikina er ókeypis.