Skrifstofa KSÍ lokuð eftir kl. 13:00 á þriðjudag
Skrifstofa KSÍ verður lokuð eftir kl. 13:00 þriðjudaginn 27. september. Rafmagnslaust verður á skrifstofunni vegna breytinga á rafmagnsinntaki við gömlu stúkuna á Laugardalsvelli.
Þeim sem þurfa að hafa samband við KSÍ milli kl. 13:00 og 17:00 þann dag er bent á upplýsingar um starfsfólk hér á ksi.is, undir Allt um KSÍ.
Skrifstofan verður opnuð að nýju kl. 09:00 að morgni miðvikudagsins 28. september.
Beðist er velvirðingar ef einhver óþægindi hljótast af þessum sökum.