128.000 heimsóknir á ksi.is í júní
Heimsóknir á vef KSÍ í júní voru alls um 128.000. Til samanburðar má nefna að í júní 2004 voru heimsóknirnar alls um 125.000 og í júní 2003 voru þær 86.000.
Vefurinn gegnir veigamiklu hlutverki í daglegri starfsemi KSÍ og þjónustu sambandsins við aðildarfélög, fjölmiðla og annað knattspyrnuáhugafólk.
Þar er að finna allar helstu upplýsingar um knattspyrnu á Íslandi, fréttir og tilkynningar, upplýsingar um mót, landslið, reglugerðir, eyðublöð og margt fleira.
Nýr ksi.is var opnaður í maímánuði og hafa viðbrögð notenda við honum verið mjög jákvæð.