Valsstúlkur Deildarbikarmeistarar
Valur vann öruggan 6-1 sigur á KR í úrslitaleik A-deildar Deildarbikars kvenna, sem fram fór á Stjörnuvelli á föstudagskvöld. Eins og tölurnar gefa var sigur Íslandsmeistaranna aldrei í hættu.
Mörk Vals í leiknum gerðu þær Nína Ósk Kristinsdóttir (3), Dóra María Lárusdóttir, Laufey Ólafsdóttir og Málfríður Sigurðardóttir. Hrefna Huld Jóhannesdóttir skoraði mark KR.