Tilkynning frá Knattspyrnufélagi Siglufjarðar
"Stjórn Knattspyrnufélags Siglufjarðar hefur ákveðið að innheimta ekki æfingagjöld yngri flokka vegna vorannar 2005 og hvetur þess í stað foreldra barna hjá félaginu að hringja í söfnunarsíma og láta andvirði æfingagjalda renna til landssöfnunarinnar Neyðarhjálp úr Norðri vegna hamfaranna í Asíu. Með þessu vill félagið sýna stuðning sinn í verki við þau samfélög sem búa nú við hörmulegar aðstæður í kjölfar hamfaranna."
Frá þessu var greint á heimasíðu KS.