Markahæstu leikmenn í landsdeildum
Að loknu Íslandsmóti er rétt að líta yfir markahæstu leikmenn í landsdeildum karla og kvenna. Markahæstu leikmenn í Landsbankadeildum karla og kvenna komu úr röðum Eyjamanna, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Margrét Lára Viðarsdóttir. Í 1. deild karla voru fimm leikmenn jafnir í efstu sætunum, en í 2. deild karla bar Siglfirðingurinn Ragnar Hauksson höfuð og herðar yfir aðra í markaskorun.
Landsbankadeild karla | Landsbankadeild kvenna | 1. deild karla | 2. deild karla