• fös. 23. jan. 2004
  • Fréttir

KSÍ greiðir 10 milljónir til aðildarfélaga

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands ákvað á stjórnarfundi 20. janúar sl. að greiða tæpar 10 milljónir króna til aðildarfélaga KSÍ, sem gjaldfærist á starfsárið 2003. Þetta er þriðja árið í röð sem aðildarfélög njóta slíks framlags. Endurskoðaður ársreikningur KSÍ liggur ekki fyrir, en ljóst er að rekstur sambandsins gekk vel á síðasta starfsári.

Nánar