Fótboltasögur
Elísabet Jökulsdóttir, höfundur bókarinnar "Fótboltasögur - Tala saman, strákar", las kafla úr bók sinni fyrir starfsmenn á skrifstofu KSÍ í morgun. Bókin lýsir knattspyrnu og knattspyrnufólki frá afar nýstárlegu sjónarhorni og dregur upp eilítið öðruvísi mynd en flest áhugafólk um knattspyrnu á að venjast. Á myndinni má sjá höfundinn ásamt Eggerti Magnússyni, formanni KSÍ, og öðrum viðstöddum í fundarsal sambandsins. |