Sýn einn aðalsamstarfsaðili KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands og Norðurljós hf. hafa í dag gert með sér víðtækan samstarfssamning sem felur í sér að Sýn verði einn aðalsamstarfsaðili KSÍ. Samningurinn er til þriggja ára og nær hvort tveggja til kynningar á íslenskri knattspyrnu í miðlum Norðurljósa og til kynningar á Sýn á vettvangi Knattspyrnusambandsins. |