Kosningar

Kosningar í stjórn og fulltrúa landsfjórðunga á 79. ársþingi KSÍ

Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 17. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega ásamt skriflegum meðmælum minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 8. febrúar nk.  Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests, sbrgrein 17.4 í lögum KSÍ.   

Framkvæmd kosninga í stjórn KSÍ 

Samkvæmt grein 17.1 í lögum KSÍ skal kosning til stjórnar fara þannig fram: 

  1. Kosning formanns, annað hvert ár, til tveggja ára í senn. Formaður skal ekki sitja lengur en sex kjörtímabil samfleytt. 
  2. Kosning fjögurra manna í stjórn til tveggja ára.Stjórnarmaður skal ekki sitja lengur en tíu kjörtímabil samfleytt. 
  3. Kosning 3ja manna til vara í stjórn til tveggja ára. 


Kosning formanns 

Þorvaldur Örlygsson var kjörin formaður KSÍ á 78. ársþingi KSÍ þann 24febrúar 2025. Kjörtímabili hans lýkur á 80. ársþingi KSÍ árið 2026. 

 

Kosning í stjórn  

Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í stjórn KSÍ lýkur á 79. ársþingi KSÍ 22. febrúar nk.: 

  • Halldór Breiðfjörð Jóhannsson 
  • Helga Helgadóttir 
  • Tinna Hrund Hlynsdóttir  
  • Unnar Stefán Sigurðsson 

Auk ofangreindra sitja í stjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur á 80. ársþingi KSÍ 2026): 

  • Ingi Sigurðsson 
  • Pálmi Haraldsson 
  • Sveinn Gíslason  
  • Þorkell Máni Pétursson 

 

Kosning varamanna í stjórn 

Kjörtímabili varamanna í stjórn lýkur á 80. ársþingi KSÍ árið 2026: 

  • Hildur Jóna Þorsteinsdóttir  
  • Jón Sigurður Pétursson 
  • Sigrún Ríkharðsdóttir 

 

Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga 

Tveggja ára kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 80. ársþingi KSÍ árið 2026: 

  • Þorsteinn Haukur Harðarson - Vesturland  
  • Tryggvi Gunnarsson - Norðurland 
  • Guðmundur Bj. Hafþórsson - Austurland 
  • Trausti Hjaltason - Suðurland 

 

--- 

Minnt er á ákvæði 17. greinar laga KSÍ: 

 

17.2. 

Þau sem bjóða sig fram til embætta sem kosið er um samkvæmt grein 17.1. skulu vera lögráða, fjár síns ráðandi og mega ekki á síðustu þremur árum hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga eða skattalögum. Óheimilt er að velja einstaklinga sem vitað er til að hafi hlotið refsidóma vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 til starfa innan íþróttahreyfingarinnar. Þau sem kosin eru og staðfest í stjórn KSÍ og þau sem kosin eru og staðfest til vara í stjórn KSÍ skulu hvorki vera í launuðu starfi hjá aðildarfélögum KSÍ né sitja í stjórnum eða vera formaður ráða þeirra. 

 

17.3.  

Sá sem býður sig fram til formanns eða stjórnar skulu hafa skrifleg meðmæli aðildarfélaga sem fara samanlagt með a.m.k. 12 atkvæði á knattspyrnuþingi. 

 

Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.  Í samræmi við ákvörðun kjörnefndar skulu framboð ásamt skriflegum meðmælum á þar til gerðu eyðublaði, send með tölvupósti tiHauks Hinrikssonar, lögfræðings á skrifstofu KSÍ (haukur@ksi.is) í síðasta lagi þann 8. febrúar næstkomandi.   

Framboðseyðublað - Stjórn

Framboðseyðublað - Varastjórn