Stóri dagurinn
Væntingarnar í Svíþjóð eru miklar, kannski svo miklar að þær fara að hafa áhrif á leikmenn Svía. Vonandi fylgjast leikmenn sænska liðsins mjög vel með fjölmiðlum og vonandi láta þær glepjast af því sem skrifað er. Það hjálpar okkar liði, því Ísland ætlar sér að vinna Svía og slá þá út úr keppninni á þeirra eigin heimavelli. Íslenska liðið er algerlega einbeitt á verkefnið og sjálfstraustið í hópnum er mjög gott eftir góða leiki í riðlakeppninni og þar á meðal sigur á Hollendingum, sem ætluðu sér að reyna að vinna þessa keppni.
Leikurinn fer fram á Örjans Vall leikvanginum í Halmstad á sunnudag og hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma (beint á RÚV). Örjans Vall tekur 7.500 manns í sæti og er uppselt á leikinn. Íslenskir stuðningsmenn á leiknum verða færri en stuðningsmenn Svía. En það skiptir engu máli. Íslendingar eru hvort eð er miklu færri en Svíar. Við getum unnið þá, höfum unnið þá, og ætlum að vinna þá á sunnudag …