Niðurröðun leikja í 2. deild kvenna.
KSÍ hefur birt drög að niðurröðun leikja í 2. deild kvenna, en keppni í 2. deild kvenna er leikinn í tveimur hlutum.
Um er að ræða sama fyrirkomulag og 2024:
Fyrri hluti – Einföld umferð
Í fyrri hluta mótsins er leikin einföld umferð, samtals 12 leikir á hvert félag.
Seinni hluti mótsins – Þrískipt úrslitakeppni
Í seinni hluta mótsins er keppni skipt upp í þrjá hluta:
-Félögin sem enda í 5 efstu sætunum í fyrri hluta mótsins leika saman og keppa um tvö laus sæti í Lengjudeild kvenna.
-Félögin í sætum 6-9 leika saman og keppa um sæti 6-9.
-Félögin í sætum 10-13 leika saman og keppa um sæti 10-13.
-Félögin taka með sér stigin úr fyrri hluta mótsins.
-Leikin er tvöföld umferð í seinni hluta mótsins.
-Félög í sætum 1-5 leika því samtals 20 leiki. Önnur félög leika samtals 18 leiki.
Nánar má sjá um fyrirkomulag mótsins má sjá hér að neðan:
-Eitt félag frá 2024 (Augnablik) tilkynnir ekki þátttöku.
-Eitt nýtt félag bætist við. Kapp og þor (KÞ) úr Reykjavík.
Mótin á vef KSÍ
Nánari upplýsingar veitir Birkir Sveinsson, birkir@ksi.is