• fim. 16. jan. 2025
  • Fræðsla

KSÍ í samstarfi við Keflavík hlýtur styrk

UEFA hefur staðfest að KSÍ í samstarfi við Keflavík hlýtur 25.000 evru styrk úr „UEFA Refugee Grant“ sjóðnum, sem ætlaður er til knattspyrnutengdraverkefna sem tengjast flóttamönnum og hælisleitendum. Aldrei hafa eins margir aðilar sótt um styrk úr sjóðnum frá UEFA, og voru um 29 umsækjendur vítt og breitt um Evrópu sem sóttu um styrkinn.

Undanfarin ár hefur Keflavík, með styrk frá UEFA, boðið börnum hælisleitenda og flóttamanna að æfa fótbolta tvisvar til þrisvar í viku. Markmið verkefnisins er að styðja við samfélagslega aðlögun flóttamanna og hælisleitenda. Það er mikill fjöldi hælisleitenda og flóttamanna í Keflavík og hefur oft á tíðum reynst erfitt að fá börn af erlendum uppruna til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Íþróttir, þar með talinn fótbolti, eru kjörinn vettvangur til að tengja fólk með ólíka bakgrunna við hvort annað, íþróttina sjálfa og aðra iðkendur. Afraksturinn er sterkara íþróttastarf, betri líkamleg og andleg líðan þátttakenda og betri aðlögun hælisleitenda og flóttamanna í þeirra nánasta umhverfi.

Keflavík mun koma til með að bjóða upp á æfingar, skaffa aðstöðu, þjálfara og aðstoða þátttakendur með búnað til iðkunar. „Fótbolti er fullkomin leið til að byggja brýr á milli ólíkra hópa,“ segir Hjördís Baldursdóttir, íþróttastjóri Keflavíkur. „Fótbolti er eins konar alþjóðlegt tungumál; markmiðið er einfaldlega að hafa gaman og bjóða fleirum að taka þátt í fjörinu.“

Líkt og kemur fram í opinberri stefnu KSÍ um samfélagsleg verkefni 2023–2026, þá telur knattspyrnuhreyfingin um 10% íslensku þjóðarinnar. Knattspyrnusamband Íslands lítur því á það sem skyldu sína að nýta þann kraft sem býr í knattspyrnufjölskyldunni til að vera virkur þátttakandi í samfélagslegum verkefnum sem gera raunverulegt og áþreifanlegt gagn. Verkefni sem þessi skipta svo sannarlega sköpum fyrir samfélagið, og erum við afar stolt af því að geta tekið þátt í verkefnum af þessu tagi.