• mán. 13. jan. 2025
  • Fræðsla
  • Þjálfaramenntun

KSÍ C 2 þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu

KSÍ mun halda tvö KSÍ C 2 þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í febrúar. Það fyrra verður helgina 8.-9. febrúar og það síðara viku síðar, 15.-16. febrúar. Þátttökurétt hafa þau sem setið hafa KSÍ C 1 þjálfaranámskeið.

Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu en drög að dagskrá má finna hér að neðan.

Drög að dagskrá

Þátttakendur fá aðgang að kennsluforritinu Canvas viku áður en námskeiðið hefst. Þá viku þurfa þátttakendur að nýta til undirbúnings, horfa á fyrirlestra, svara spurningum úr einstaka fyrirlestrum og undirbúa umræðuefni.
Ath. – skráningu lýkur því viku fyrir námskeið.

Námskeiðsgjald er 35.000 kr.

Markmið KSÍ C þjálfaranámskeiðsins er að gefa þjálfurum tæki og tól til að:

-Búa börnum og unglingum öruggt umhverfi til að stunda knattspyrnu
-Skipuleggja æfingar
-Efla færni sína í þjálfun/kennslufræði
-Bjóða iðkendum upp á æfingar við hæfi

Skráning:

8.-9. febrúar (skráningu lýkur 31. janúar)
15.-16. febrúar (skráningu lýkur 7. febrúar)

Ath. af gefnu tilefni fylgja hér fyrir neðan reglur fræðslunefndar KSÍ um mætingu á þjálfaranámskeið:

-Fjarvist vegna KSÍ: (t.d. leikir í móti og landsliðsæfingar) að hámarki 4 kennslustundir. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.
-Fjarvist af öðrum ástæðum: að hámarki 2 kennslustundir. 3-4 kennslustundir þýðir verkefni. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.

Vinsamlegast athugið að mót á vegum KSÍ eru Lengjubikar, Bikarkeppni KSÍ og Íslandsmót. Önnur mót eru ekki á vegum KSÍ.