• fim. 02. jan. 2025
  • Mótamál

Drög að niðurröðun efstu deilda og bikars 2025

Drög að niðurröðun leikja í Bestu deild karla, Bestu deild kvenna, Lengjudeild karla, Lengjudeild kvenna og Meistarakeppni kvenna og karla hefur verið birt á vef KSÍ.  Leikdagar í Mjólkurbikar karla og kvenna hafa einnig verið birtir.

Mótin á vef KSÍ

Mjólkurbikarinn

Gert er ráð fyrir að úrslitaleikir Mjólkurbikarsins verði í ágúst. Úrslitaleikur kvenna verði laugardaginn 16. ágúst og úrslitaleikur karla verði föstudaginn 23. ágúst (til vara 19. september).  Keppni í Mjólkurbikar karla hefst í lok mars og keppni í Mjólkurbikar kvenna hefst í um miðjan apríl.

Besta deild karla

Besta deild karla hefst laugardaginn 5. apríl og lýkur laugardaginn 25. október. Opnunarleikur mótsins verður Breiðablik – Afturelding.

Besta deild kvenna

Besta deild kvenna hefst þriðjudaginn 15. apríl og lýkur laugardaginn 18. október. Opnunarleikur mótsins verður Breiðablik - Stjarnan.

Lengjudeildirnar

Keppni Lengjudeildanna hefst í byrjun maí. Keppni kvenna lýkur fimmtudaginn 4. september. Keppni karla lýkur laugardaginn 27. september með úrslitaleik á Laugardalsvelli um laust sæti í Bestu deild karla að ári.

2., 3., og 4. deild karla

Drög að leikdögum í 2., 3. og 4. deild karla verður birt 3. janúar.

Önnur mót meistaraflokka

Niðurröðun leikja í 2. deild kvenna, 5. deild karla og Utandeild karla er í vinnslu og verður birt um miðjan janúar.

Mynd:  Mummi Lú