• fös. 13. des. 2024
  • Ársþing

79. ársþing KSÍ verður haldið 22. febrúar

79. ársþing KSÍ verður haldið á Hilton Reykjavik Nordica 22. febrúar 2025.  Í samræmi við grein 11. í lögum KSÍ skulu tillögur að laga- og/eða reglugerðarbreytingum sem óskað er eftir að teknar verði fyrir á knattspyrnuþingi, sendar stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þingið eða í síðasta lagi miðvikudaginn 22. janúar nk.

Þingið verður sett kl. 10:00 laugardaginn 22. febrúar og er gert ráð fyrir að því ljúki um kl. 17:00 sama dag.  Nánari dagskrá ásamt upplýsingum verður send sambandsaðilum síðar.