Leikið við Kanada 29. nóvember
KSÍ hefur samið við Knattspyrnusamband Kanada um vináttuleik A landsliða kvenna á Pinatar Arena á Spáni þann 29. nóvember næstkomandi. Áður hafði KSÍ staðfest vináttuleik við Danmörku á sama stað þann 2. desember. Báðir leikir verða sýndir beint á KSÍ TV í Sjónvarpi Símans.
Ísland og Kanada hafa tvisvar sinnum mæst áður í A landsliðum kvenna, í báðum tilfellum í Algarve-bikarnum. Árið 2016 Hafði Kanada betur með einu marki gegn engu og árið 2019 gerðu liðin markalaust jafntefli.