• fös. 08. nóv. 2024
  • Mótamál
  • Besta deildin

Flestir áhorfendur á úrslitaleiknum

Keppni í Bestu deild karla lauk seinustu helgina í október með hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn milli Víkings og Breiðabliks, þar sem Breiðablik hafði betur. Alls mættu 2.500 áhorfendur á leikinn og komust að sögn mun færri að en vildu, og er það jafnframt best sótti leikur deildarinnar í ár.

Meðalaðsókn að leikjum efri hluta Bestu deildar karla var 909 og vitanlega ræður aðsóknin að fyrrnefndum úrslitaleik miklu þar um. Næst best sótti leikur efri hlutans var viðureign Breiðabliks og Stjörnunnar, þar sem 1.234 manns mættu.
Í neðri hlutanum var besta mætingin á leik KR og Fram, eða 907, og meðalaðsókn á leiki neðri hlutans var 522.

Samanburður 2023 og 2024

  • 2023: Fyrri hluti 111.331 alls, 843 meðaltal
  • 2024: Fyrri hluti 114.935 alls, 871 meðaltal
  • 2023: Neðri hluti 8.654 alls, 577 meðaltal
  • 2024: Neðri hluti 7.830 alls, 522 meðaltal
  • 2023: Efri hluti 13.568 alls, 905 meðaltal
  • 2024: Efri hluti 13.640 alls, 909 meðaltal
  • 2023: Samanlagt 133.553 alls, 824 meðaltal
  • 2024: Samanlagt 136.405 alls, 842 meðaltal

Besta deild karla - Fyrri hluti

Besta deild karla - Efri hluti

Besta deild karla - Neðri hluti

Mynd:  Mummi Lú.