A kvenna - dregið í Þjóðadeildinni á fimmtudag
Dregið verður í Þjóðadeild kvenna á fimmtudag og hefst drátturinn kl. 12:00.
Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á vef UEFA.
Keppnin verður leikin í febrúar, apríl og maí/júní landsliðsgluggunum, en Ísland verður í öðrum styrkleikaflokki.
Frekari upplýsingar um dráttinn má finna á vef UEFA.
Styrkleikaflokkur 1
Spánn
Þýskaland
Frakkland
Ítalía
Styrkleikaflokkur 2
Ísland
Danmörk
England
Holland
Styrkleikaflokkur 3
Svíþjóð
Noregur
Austurríki
Belgía
Styrkleikaflokkur 4
Portúgal
Skotland
Sviss
Wales