U17 karla áfram í næstu umferð undankeppni EM 2025!
U17 karla tryggði sér sæti í seinni umferð undankeppni EM 2025 með góðum 3-1 sigri gegn Eistlandi.
Spánn vann 5-0 sigur gegn Norður Makedóníu sem þýðir að Ísland og Spánn eru komin áfram í seinni umferð undankeppninnar, en liðin mætast innbyrðis á þriðjudaginn.
Helgi Hafsteinn Jóhannsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson og Guðmar Gauti Sævarsson skoruðu mörk Íslands í leiknum.