Þátttökutilkynningar meistaraflokka 2025
Mynd - Mummi Lú
Þátttökugögn fyrir knattspyrnumótin 2025 í meistaraflokkum hafa verið birt á vef KSÍ.
Hægt er að nálgast þau hér:
Þátttökugögn fyrir meistaraflokka 2025
Ný félög í keppni meistaraflokks
Vakin er athygli á því að öll ný félög sem hefja keppni í meistaraflokki 2025 (deild og/eða bikar) og félög sem ekki hafa tekið þátt í keppni meistaraflokks síðustu þrjú keppnistímabil, þurfa að leggja fram með þátttökutilkynningunni eftirfarandi viðbótargögn:
- Staðfestingu frá ÍSÍ um stofnun félagsins (ný félög).
- Staðfestingu aðalstjórnar félagsins um heimild til þátttöku.
- Staðfestingu viðkomandi vallaryfirvalda um heimild til afnota af leikvelli.
- Leikmannalista – Lágmark 25 leikmenn.
Óskir félaga vegna leikja
Mótanefnd KSÍ óskar eftir því að félög komi á framfæri við nefndina þeim óskum sem þau telja að nefndin eigi að leitast við að uppfylla við niðurröðun leikja fyrir sumarið 2025.
Dæmi um óskir:
- Framkvæmdir á leikvelli sem hafa áhrif á niðurröðun.
- Ósk um að eiga ekki heimaleik á ákveðnum degi þar sem völlurinn sé upptekinn eða viðburðir á svæðinu sem koma í veg fyrir að hægt sé að leika.
- Ósk um að eiga ekki heimaleik í fyrstu umferð vegna vallarmála.
- Ósk um að eiga heimaleik á ákveðnum degi vegna viðburðar á svæðinu sem gæti aukið aðsókn.
- Óskir m.t.t. ferðatilhögunar, t.d. tímasetning útileikja.
- Tímasetning/dagsetning heimaleikja.
- Aðrar óskir/ábendingar.
Upplýsingar í símaskrá KSÍ
Af gefnu tilefni eru félögin beðin um að tilkynna KSÍ um allar breytingar á símanúmerum og netföngum. Mikilvægt er að skilaboð frá skrifstofu KSÍ komist ávallt til skila og berist til réttra aðila.
Félög eru jafnframt beðin um að kynna sér hvaða upplýsingar birtast um félagið á vef KSÍ undir flipanum „Aðildarfélög“ (Um KSÍ / Aðildarfélög) og tilkynna um allar breytingar til: media@ksi.is
Munið að öll þátttökugögn skulu berast fyrir 10. nóvember!