• sun. 27. okt. 2024
  • Mótamál
  • Besta deildin

Bestir og efnilegastir í Bestu deild karla

Í dag, sunnudag, fór fram lokaumferð í Bestu deild karla þar sem Breiðablik tók á móti Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur á Víkingi R.

Eins og undanfarin ár velja leikmenn í Bestu deildinni besta og efnilegasta leikmann deildarinnar ásamt því að velja besta dómarann.

Efnilegasti leikmaður Bestu deildar karla 2024 er Benoný Breki Andrésson, KR. Benoný Breki skoraði 21 mark í 26 leikjum, þar á meðal skoraði hann 5 mörk í lokaumferðinni og bætti þar með markamet í efstu deild.

Besti leikmaður Bestu deildar karla 2024 er Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðablik. Höskuldur spilaði 27 leiki fyrir Blika og skoraði í þeim 9 mörk.

Það hefur verið fastur liður í lok móta síðan 1984 að afhenda leikmönnum sem skara fram úr í efstu deild karla „Flugleiðahornin“. Fyrst þegar þessir frægu verðlaunagripir voru afhentir þá var Guðni Bergsson leikmaður Vals valinn efnilegasti leikmaðurinn og Bjarni Sigurðsson leikmaður ÍA valinn besti leikmaður deildarinnar.

Mynd (Mummi Lú):  Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Höskuldur Gunnlaugsson.