Ísland mætt til Nashville
A kvenna er mætt til Nashville þar sem liðið mætir Bandaríkjunum á sunnudag.
Um er að ræða seinni vináttuleik þjóðanna, en sá fyrri endaði með 3-1 sigri Bandaríkjanna. Leikurinn á sunnudagin fer fram á Geodis Park í Nashville og hefst hann kl. 21:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni útsending á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans.
Staðan á leikmannahópnum er góð og eru allir leikmenn klárir í slaginn á sunnudag.