• mán. 21. okt. 2024
  • Mótamál
  • Futsal

Drög að niðurröðun í Futsal 2025

KSÍ hefur birt drög að leikjaniðurröðun í Futsal 2025 – Íslandsmóti meistaraflokka karla og kvenna innanhúss.

  • 13 lið eru skráð til leiks í meistaraflokki karla.
  • 3 lið eru skráð til leiks í meistaraflokki kvenna.

Frestur til að skila inn athugasemdum við leikjaniðurröðun er til föstudagsins 1. nóvember á netfangið gudnie@ksi.is.

Umsjónarfélög:

  • Mfl. kvenna: KFR og Smári
  • Mfl. karla: Vængir Júpiters, Augnablik, Uppsveitir, Leiknir/KB, Ísbjörninn og KFR

Félög sem eru með umsjón leikja þurfa að staðfesta við KSÍ hvort núverandi tímar og dagsetningar leikja séu í lagi.  Umsjónarfélag ber að leggja til umsjónarmann með leikklukku og aðstoða á annan hátt við framkvæmd mótsins í samráði við dómara.

Dómgæsla:

Umsjón dómgæslu er í höndum KSÍ.

Fyrirkomulag mótsins:

Í meistaraflokki kvenna leika þrjú lið í einum riðli. Leiknar eru tvær umferðir.

Í meistaraflokki karla leika 13 lið í þremur riðlum. Í riðlakeppni mótsins eru leiknar tvær umferðir í hverjum riðli.

  • Eftir riðlakeppni fer fram úrslitakeppni fjögurra liða (undanúrslit og úrslitaleikur).
  • Í undanúrslit fara sigurvegarar riðlanna ásamt sigurvegara umspils liðanna tveggja sem eru nr. 1 og nr. 2 í 2. sæti riðlakeppninnar.
  • Besti árangur í 2. sæti reiknast sem meðalfjöldi stiga pr leik.

Mótið á vef KSÍ

KSÍ áskilur sér rétt til að endurskoða riðlaskiptingu í heild sinni ef breytingar verða á þátttöku.