Víkingur R. mætir Omonoia frá Kýpur í Sambandsdeildinni
Mynd - Mummi Lú
Víkingur R. hefur leik á fimmtudag í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Liðið mætir Omonoia frá Kýpur og er leikið ytra, en leikurinn hefst kl. 16:45 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Víkingur R. mætir einnig Cercle Brugge, FK Borac, FC Noah, Djurgarden og LASK í deildarkeppninni, en fyrsti heimaleikurinn verður gegn Cercle Brugge fimmtudaginn 24. október á Kópavogsvelli.