Haukar og KR í Lengjudeild kvenna 2025
Mynd - Helgi Halldórsson
Haukar og KR hafa tryggt sér sæti í Lengjudeild kvenna árið 2025.
Lokaumferð A úrslita í 2. deild kvenna fór fram á laugardag með tveimur leikjum. Haukar höfðu þegar tryggt sér sæti í Lengjudeildinni að ári, en KR og Völsungur börðust um að fylgja Haukum upp um deild. KR vann 2-1 sigur gegn Einherja og á sama tíma unnu Haukar 3-0 sigur gegn Völsungi og því ljóst að KR er komið upp í Lengjudeildina.
Hægt er að skoða sumarið í 2. deild kvenna á vef KSÍ.