Álftanes og Hafnir í 4. deild 2025
Keppni í 5. deild karla er lokið þetta sumarið og lauk þegar Álftanes og Hafnir mættust í úrslitaleik um sigur í deildinni. Skemmst er frá því að segja að Álftnesingar unnu 4-0 stórsigur, en leikurinn fór einmitt fram á Álftanesi. Bæði lið höfðu lagt mótherja sína í undanúrslitum nokkuð örugglega, en í undanúrslitum var leikið heima og heiman.
Tapliðin úr undanúrslitunum mættust í leik um 3. sætið og þar hafði Módas betur gegn Smára 5-1.