Riðill U17 karla leikinn á Íslandi
Riðill U17 karla í fyrstu umferð undankeppni EM 2025 verður leikinn á Íslandi í haust.
Leikið verður dagana 30. október til 5. nóvember, en tilkynnt verður síðar á hvaða völlum leikirnir fara fram.
Í riðlinum ásamt Íslandi eru Spánn, Norður Makedónía og Eistland. Nýtt skipulag undankeppni og lokakeppni EM U17 karla verður tekið í notkun í haust og er hægt að lesa sér frekar til um það á vef UEFA.