Seinni viðureign Víkings R. og Santa Colmbo á fimmtudag
Mynd - Mummi Lú
Víkingur R. mætir UE Santa Coloma frá Andorra í seinni viðureign liðanna á fimmtudag í Sambandsdeild UEFA. Leikurinn fer fram á Estadi Nacional vellinum í Andorra.
Um er að ræða seinni leik liðanna í umspili um sæti í deildarkeppni, áður riðlakeppni, Sambandsdeildarinnar. Hægt er að lesa um hið nýja fyrirkomulag á vef UEFA.
Vefur UEFA
Fyrri viðureign liðanna fór fram fimmtudaginn 22. ágúst á Víkingsvelli og endaði með 5-0 sigri Víkinga
Dregið verður í hina nýju deildarkeppni 30. ágúst.