Ísbjörninn hefur leik í forkeppni Meistaradeildarinnar í Futsal
Ísbjörninn hefur á miðvikudag leik í forkeppni Meistaradeildarinnar í Futsal.
Liðið er í riðli með Akaa Futsal, Tirana Futsal og TSV Weilimdorf, en riðillinn er leikinn í Albaníu á heimavelli Tirana Futsal.
Það lið sem endar í efsta sæti riðilsins kemst áfram í næstu umferð.
Ísbjörninn hefur leik gegn Akaa Futsal á miðvikudag, mætir svo Tirana Futsal á fimmtudag og TSV Weilimdorf á laugardag.