U17 lið karla vann góðan sigur á Ungverjum
U17 lið karla vann góðan 1-0 sigur á heimamönnum á Telki Cup æfingamótinu sem fram fer í Ungverjalandi um þessar mundir.
Helgi Hafsteinn Jóhannsson skoraði fyrsta og eina mark leiksins á 2. mínútu. Þrátt fyrir mikla baráttu Ungverja tókst þeim ekki að koma boltanum í netið og lokatölur því í 1-0 fyrir Íslandi.
Í hinum leik dagsins sigraði Ítalía Suður-Kóreu 2-1, en fyrri viðureignir mótsins fóru svo að Suður-Kórea vann Ungverjaland 2-0 og íslenska liðið tapaði naumlega fyrir Ítölum
Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Suður-Kóreu á laugardag klukkan 09:00, leikurinn verður í beinu streymi á youtube-rás Ungverska knattspyrnusambandsins