Danskir dómarar í Bestu deild kvenna á fimmtudag
Tveir danskir dómarar verða að störfum á leik Víkings R. og Tindastóls í Bestu deild kvenna á fimmtudag. Í dómarateyminu í leiknum verður Fredrikke S∅kjær með flautuna og Anna Kjær Scmidt verður aðstoðardómari 2. Þeim til halds og trausts verða Tomasz Piotr Zietal (aðstoðardómari 1) og Reynir Ingi Finnsson (fjórði dómari). Þetta er hluti af samstarfi knattspyrnusambanda á Norðurlöndum um dómaraskipti.
- Dómari: Fredrikke S∅kjær
- Aðstoðardómari 1: Tomasz Piotr Zietal
- Aðstoðardómari 2: Anna Kjær Schmidt
- Varadómari: Reynir Ingi Finnsson