Umboðsmannapróf FIFA í nóvember
Umboðsmannapróf FIFA í nóvember - skráning hefst 19. ágúst.
Til þess að gerast skráður umboðsmaður hjá FIFA, þarf að standast sérstakt umboðsmannapróf. Næsta umboðsmannapróf FIFA verður haldið miðvikudaginn 20. nóvember.
Skráningin í prófið opnar mánudaginn 19. ágúst nk. og lokar föstudaginn 4. október. Til að skrá sig í prófið þarf að stofna aðgang inn á FIFA kerfi fyrir umboðsmenn og stofna skráningarbeiðni fyrir prófið.
Slóð: FIFA kerfi fyrir umboðsmenn
Bæði prófreglur og námsgögn verða aðgengileg á vef FIFA frá og með 19. ágúst.
Skrifstofa KSÍ mun innheimta próftökugjald sem þarf að greiða áður en próf eru þreytt.
Frekari gögn til skýringa verða aðgengileg inn á skráningarkerfi FIFA frá og með 19. ágúst.
Tengiliður hjá KSÍ vegna skráningar umboðsmanna og töku umboðsmannaprófs er Fannar Helgi Rúnarsson (fannar@ksi.is)