Miðasala á bikarúrslit kvenna er hafin
Sala aðgöngumiða á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna er hafin á Tix.is. Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli föstudaginn 16. ágúst og hefst kl. 19:15. Liðin sem mætast eru Valur og Breiðablik, sem eru í efstu tveimur sætum Bestu deildar kvenna, þannig að von er á hörkuleik.
Miðaverð
17 ára og eldri: kr. 2.500 (hækkar í kr. 3.000 á leikdag).
16 ára og yngri: kr. 500 (helst óbreytt á leikdag).