Blikar úr leik
Breiðablik er úr leik í Sambandsdeildinni eftir eins marks tap í seinni leik liðsins gegn liði Drita frá Kósovó. Eina mark leiksins kom um miðjan seinni hálfleik. Drita vann einnig fyrri leikinn á Kópavogsvelli og hafði því betur 3-1 samanlagt.
Þrjú önnur íslensk félagslið eru í Sambandsdeildinni og leika seinni leiki sína á fimmtudag.