• mán. 22. júl. 2024
  • Landslið
  • A kvenna

Mæta Bandaríkjunum tvisvar í október

KSÍ getur nú staðfest að A landslið kvenna mætir liði Bandaríkjanna í tveimur vináttuleikjum ytra í október. Fyrri leikurinn verður fimmtudaginn 24. október í Austin (*), Texas og seinni leikurinn sunnudaginn 27. október í Nashville, Tennessee.

A landslið kvenna

Ísland og Bandaríkin hafa mæst 15 sinnum í A landsliðum kvenna, síðast árið 2022 á SheBelieves Cup mótinu sem fram fór í Bandaríkjunum. Bandaríkin hafa unnið 13 viðureignir og tvisvar hafa liðin skilið jöfn.

Fyrri viðureignir

* Leikurinn 24. október er í raun eftir miðnætti að íslenskum tíma, þannig að sá leikur skráist 25. október á Íslandi.

Mynd:  Hulda Margrét