Íslenskir dómaraeftirlitsmenn í Evrópuleikjum á fimmtudag
Uppfært 23.07.24.
Það eru ekki bara íslensku félagsliðin sem verða í eldlínunni í Evrópumótum á fimmtudag. Þrír íslenskir dómaraeftirlitsmenn verða að störfum, í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni.
Kristinn Jakobsson verður dómaraeftirlitsmaður í Skotlandi á leik Kilmarnock og belgíska liðsins Cercle Brugge í Evrópudeildinni. Sama dag verður Þóroddur Hjaltalín dómaraeftirlitsmaður í Svíþjóð á viðureign Djurgården og Progres frá Lúxemborg í Sambandsdeildinni. Þá verður Gylfi Þór Orrason dómaraeftirlitsmaður þegar Magpies frá Gíbraltar mætir danska liðinu FCK.