Þrjú lið leika á fimmtudag
Þrjú íslensk lið verða í eldlínunni á fimmtudag þegar þau leika seinni leiki sína í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildar UEFA.
Breiðablik mætir GFK Tikves frá Norður-Makedóníu á Kópavogsvelli kl. 19:15. Fyrri leik liðanna lauk með 3-2 sigri Norður-makedónska liðsins.
Valur mætir albanska liðinu Vllaznia ytra og hefst leikurinn kl. 18:30 að íslenskum tíma. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum að Hlíðarenda.
Stjarnan vann 2-0 sigur á Norður-írska liðinu Linfield í Garðabænum. Leikur liðanna á fimmtudag hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma.