Ísland mætt til Sosnowiec
A kvenna er mætt til Póllands þar sem það mætir Póllandi á þriðjudag.
Um er að ræða síðasta leikinn í undankeppni EM 2025, en Ísland tryggði sér sæti í lokakeppni mótsins með glæsilegum 3-0 sigri gegn Þýskalandi á föstudaginn.
Liðið æfði í dag, mánudag, á leikvellinum hér í Sosnowiec í miklum hita og eru allir leikmenn liðsins tilbúnir í verkefni morgundagsins. Takist liðinu að sigra Pólland og Þýskaland tapar stigum gegn Austurríki mun Ísland enda í efsta sæti riðilsins. Það er því til mikils að vinna.
Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður hann í beinni útsendingu á RÚV.